Markvissari lyfjameðferð
ValaMed athugar virkni lyfjameðferðar áður en hún hefst

 

ValaMed er í dag rekið með framlögum og sjálfboðavinnu. Hægt er að styrkja rannsóknina með frjálsum framlögum. Reikningsnm. 101-15-630225 og kt. 600707-1160

ValaMed er sprotafyrirtæki sem gerir lyfjanæmispróf (e. chemosensitivitytesting) á ferskum krabbameinsfrumum frá sjúklingum í tilraunaskyni til að sannreyna mögulega einstaklingsbundna krabbameinslyfjameðferð. Fyrir lyfjanæmispróf er tekið sýni úr krabbameinsæxli og áhrif mismunandi krabbameinslyfja á krabbameinsfrumurnar í rækt eru metin. Tilgangur vísindarannsóknarinnar er að útiloka þau lyf sem ekki eru líkleg til að vinna á krabbameinsfrumunum. Markmið okkar er að lyfjanæmisprófið geti með 90% öryggi sagt til um hvaða lyf muni reynast gagnslaus við krabbameinsmeðferð. Hugmyndin er ekki ný af nálinni, en vegna næmari og öruggari mæliaðferða sem nú eru í þróun, hefur hún vakið áhuga og fylgi meðal vísindamanna.

ValaMed starfar með hópi krabbameinslækna, skurðlækna og vísindamanna vegna rannsókna í tengslum við lyfjanæmispróf á krabbameinsæxlum og áhrifum mismunandi krabbameinslyfja á krabbameinsfrumur sem eru mæld. Verkefnið er skilgreint sem vísindarannsókn. Meðal þeirra lækna og vísindamanna sem þegar eru í samstarfi með ValaMed má nefna Helga Sigurðsson prófessor og yfirlækni í krabbameinslækningum, Helga Hafstein Helgason sérfræðing í krabbameinslækningum, Sigurð Árnason sérfræðing í krabbameinslækningum, Pál Helga Möller sérfræðing í skurðlækningum, Ingvar Hákon Ólafsson sérfræðing í heila- og taugaskurðlækningum, Valgarð Egilsson lækni og sérfræðing í frumumeinafræði. Finnbogi Rútur Þormóðsson, doktor í taugalíffræði fer með yfirumsjón rannsókna.