Samstarfsverkefni á líftæknisviði
ValaMed stefnir að innleiðingu lyfjanæmisprófa á Íslandi.

 

Fréttatilkynningar

ValaMed er sprotafyrirtæki með aðsetur í Kím - Medical Park, Vatnagörðum 18. Fyrirtækið hefur unnið að þróun á lyfjanæmisprófum frá árinu 2007 í samstarfi við íslenska skurð- og krabbameinslækna, auk erlendra samstarfsaðila.

Lyfjanæmispróf nýtist í klínískri vinnu lækna, lyfjaþróun og ýmsum grunnrannsóknum. Lyfjanæmisprófið gefur tækifæri til að prófa fleiri lyf á sama æxlinu og um leið prófa lyfin á miklum fjölda sýna.
ValaMed vinnur að frekari þróun lyfjanæmisprófa með það fyrir augum að auka næmnina, svo hægt sé að prófa smærri sýni. Í þeim tilgangi verða niðurstöður lyfjanæmisprófa meðal annars tengdar við genatjáningu, en slíkar upplýsingar skapa grundvöll fyrir nýja kynslóð lyfjanæmisprófa byggða á sameindalíffræðilegum mælingum.

ValaMed getur einnig boðið aðra þjónustu tengda frumurækt samhliða rannsóknarstarfi sínu.

ValaMed og Kerecis