ValaMed var stofnað árið 2007 í þeim tilgangi að þróa lyfjanæmispróf krabbameinslyfja og athuga notkunarmöguleika þeirra á Íslandi. Finnbogi R. Þormóðsson, doktor í taugalíffræði, fer með yfirumsjón rannsókna og krabbameinssýnin eru unnin í samstarfi við skurð- og krabbameinslækna á Landspítalanum. ATP-lúsíferasa lyfjanæmispróf voru kynnt á ráðstefnu Læknadeildar Háskóla Íslands og ágrip birt í Læknablaðinu (sjá V-127 http://www.laeknabladid.is/fylgirit/fylgirit-58/veggspjold/). Nýlega hefur verið birt grein um mögulegan efnahagslegan ávinning lyfjanæmisprófa http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pubmed/20417480 |
|








